Hvað er málið?

Já, Drekktu betur gekk stórvel.  Denni frændi og félagi unnu bjórkassann og allir kátir.  Eftir að spurningunum lauk spjallaði ég aðeins við Hálfdán Bjarka, Ósk og Eirík ... stoppaði nú ekki mjög lengi, enda stefnan sett suður daginn eftir í fermingarveislu hjá Sigga frænda mínum (endalaust mikið af Siggum í kringum mig).  Ferðin suður gekk ágætlega, ég verð reyndar að viðurkenna að mig langaði ekki mikið suður.  María Ögn var að fara vestur og íbúðin sem við vorum í var upp í Norðlingaholti og ég ekki á bíl, ekki beint spennandi. 

Laugardagurinn fór að mestu í að aðstoða við fermingarundirbúning sem var mjög ágætt.  Hins vegar sé ég enn eftir að hafa hætt mér í Kringluna á laugardeginum.  Þar var auðvitað allt troðfullt af fólki og kílómeterslangar raðir við hvern kassa.  Ég varð ekki lítið pirruð þar sem ég hafði mjög takmarkaðan tíma til umráða og endaði með því að ég keypti ekki neitt nema tvennar sokkabuxur Blush Ég verð að viðurkenna að því lengur sem ég er hérna fyrir vestan, því minna finnst mér varið í Reykjavík.  Hugsa að ég muni heldur flytja til útlanda eða e-ð annað út á landi heldur en að flytja aftur til Reykjavíkur, en maður á svo sem aldrei að segja aldrei. 

Í gær keyrðum við svo aftur vestur, eftir mjög ágæta fermingarveislu.  Það leit reyndar út fyrir á tímabili að við kæmumst ekkert heim.  Ekki nóg með að það væri snjóflóðahætta á Kirkjubólshlíðinni, heldur var Holtavörðuheiðin líka lokuð.  Við fréttum þó að því að það ætti að opna hlíðina þannig að við brunuðum af stað og vorum rúma 7 tíma heim, en við þurftum að fara Heydalinn og Laxárdalsheiði sem bætti töluvert við ferðatímann.  Við vorum komin heim um eitt leytið og ég var sofnuð um tvö - Vaknaði svo upp úr 7 og verð að viðurkenna að það örlaði á þreytu hjá mér. 

Kannski er það þreytan að hafa áhrif, en ég er alveg ótrúlega pirruð og neikvæð e-ð akkúrat núna.  Held það spili líka inn í hvað mórallinn hérna heima hefur verið hrikalegur síðustu vikur og útspil ríkisstjórnarinnar hefur ekki hjálpað til.  Trú íbúa hér á ríkisstjórninni endurspeglast líklega nokkuð í svörun á BB við spurningu vikunnar.  Einungis tæp 13% af 613 svarendum hafa trú á stjórnvöldum - kemur á óvart - Whistling  Ítreka það að ég efast ekki um að nefndin eigi eftir að vinna vel og skila af sér góðum tillögum - hef minni trú á að ríkisstjórnin eigi eftir að nýta þær og framkvæma e-ð.  Staðan hér fyrir vestan er svo margfalt verri en staðan var fyrir austan þegar ákveðið var að reisa álver, hversu lengi þurfum við að bíða eftir aðgerðum?  Það sorglega er að á meðan okkur er sagt að ekkert sé hægt að gera þá er verið að vinna að stofnun tveggja alþjóðlegra háskóla í Keflavík og margt fleira semég ætla ekki að nefna til að móðga engan og tek það fram að ég er alls ekki á móti því að stofnaðir verði háskólar í Keflavík, ég einfaldlega skil ekki af hverju aldrei er hægt að gera neitt hérna fyrir vestan.  Nú er ég ekki viðskiptafræðingur, en er eðlilegt að skera niður framkvæmdir á svæði þar sem engin þensla er? Bandit 

Bendi ykkur að lokum á að á að lesa nýjasta bloggið hjá Grími bæjarstjóra í Bolungarvík.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband