Radical Chicks og Kúrekalag dagsins

Já, ég er ekki frá því að stelpurnar í Dixie Chicks (Radical Chics eins og Erla bendir á) hafi hresst svolítið upp á gærdaginn sem einkenndist af frekar óskemmtilegu veðri.  Erla kom ekki beint inn á það í commentinu, en ástæðan fyrir því að stúlkurnar í Dixie Chicks voru kallaðar Radical eða róttækar var sú að þær voguðu sér að gagnrýna Bush forseta Bandaríkjanna, í stuttu máli þá sögðust þær skammast sín fyrir að vera frá sama fylki og hann: Texas.   Í kjölfar þessara ummæla þeirra þá voru lög þeirra bönnuð hjá fjölda útvarpsstöðvar í Bandaríkjunum.  Þær komu þó sterkar inn aftur með nýjustu plötunni sinni, enda meirihluti íbúa í Bandaríkjunum komin á þeirra skoðun og á móti Bush.

Þar sem stelpurnar í Dixie Chicks stóðu sig svona vel í gær þá ætla ég að gefa annarri stúlknasveit tækifæri í dag.  Hljómsveitin heitir The Wreckers og eru það stöllurnar Michelle Branch og Jessica Harp sem þar eru fremstar í flokki.  Lag dagsins er af plötunni Stand Still, Look Pretty og heitir Leave the Pieces.

Allar ábendingar um góðar kúrekahljómsveitir eru vel þegnar - bendi líka á könnunina sem er í gangi Bandit 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrefna Katrín Guðmundsdóttir

Greinilega skynsamar stúlkur, full ástæða til að hlusta á þær þó það væri jafnvel bara vegna skoðananna ;)

Hrefna Katrín Guðmundsdóttir, 22.3.2007 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband