Föstudagur, 23. mars 2007
Kúrekalag dagsins
Það gengur mun betur en ég átti von á að yfirstíga fordóma mína gegn kúreka/sveitatónlist. Nú er þriðji dagurinn genginn í garð og nýtt band og nýtt lag komið á fóninn. Þetta var erfitt val, enda föstudagur og helgin framundan.
Ég er búin að komast að því að sveitatónlist er almennt heldur dapurleg (þ.e. textarnir) en þar sem mig langaði að hressa aðeins upp á stemmninguna fyrir helgina þá endaði ég á því að velja tvö lög.
Annars vegar er það hin glæsilega söngkona Dolly Parton sem allir þekkja með slagarann 9 to 5 sem mér finnst mjög viðeigandi svona í lok vinnuvikunnar.
Hins vegar er það The Devil went down to Georgia með Charlie Daniels Band - stóðst ekki fiðluleikinn í laginu
Var að uppgötva þennan sniðuga fítus að geta sett tónlist inn á síðuna. Ætla að setja lag/lög hvers dags til að þið getið hlustað með mér
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.