Á Ísafirði af öllum stöðum ...

Já, það er ekkert skrýtið að fólk fari héðan og að fólk á höfuðborgarsvæðinu komi ekki vestur.  Ef til vill mætti segja að þetta sé vandamál okkar í hnotskurn - viðhorfin sem við berjumst við - fordómar e.t.v.?

Þeir sem hlustuðu á morgunútvarpið í gærmorgun, rétt fyrir klukkan níu heyrðu þar mjög jákvæða og skemmtilega umræðu um Aldrei fór ég suður hátíðina sem verður haldin hér á Ísafirði í Páska-/Skíðavikunni.  Umræðan missti þó flugið all verulega þegar annar stjórnenda þáttarins sagði: „og á Ísafirði af öllum stöðum“ - Gestur Einar (hinn stjórnandi þáttarins) brást vel við og spurði hvað Hrafnhildur ætti eiginlega við með þessum ummælum sínum og þá fór hún að tala um hvað það er langt að fara vestur.  Fólki finnist það flókið mál og að allt eigi að fara fram í Reykjavík.  Ég held að Hrafnhildur hafi alls ekki verið að meina þessi ummæli sín eins og þau hljómuðu, heldur hafi verið um einskonar "Freudian slip" að ræða.  Rétt er að halda til haga að Hrafnhildur baðst afsökunar á ummælum sínum í morgun, en það var rétt eftir sjö fréttir og spurning hversu margir hafi verið að hlusta á þeim tíma. 

Þessi setning „og á Ísafirði af öllum stöðum“ finnst mér þó vera lýsandi fyrir þau viðhorf sem margir virðast hafa til landsbyggðarinnar og þá Vestfjarða.  Alltof oft hef ég verið spurð um það, eftir að ég flutti vestur, hvort mér leiðist ekki örugglega að búa á svona litlum stað og komast ekki í "menninguna" sem finna má í Reykjavík.  Staðreyndin er hinsvegar sú að ég geri enn meira "menningarlegt" eftir að ég flutti vestur heldur en á þeim tíma sem ég bjó í Reykjavík.  Það líður ekki sú vika að ég geri ekki eitthvað skemmtilegt og það er helst að ég kvarti undan því að það sé of mikið um að vera, enginn tími til að hanga heima og horfa á sjónvarpið eða lesa góða bók.

Ef við tökum næstu vikuna sem dæmi. Í kvöld stefnir allt í að við hittumst nokkur að spila og aldrei að vita nema við skellum okkur seinna um kvöldið á Langa Manga þar sem lifandi tónlist er nánast undantekningarlaust á helgum.  Á morgun er einmitt of mikið um að vera.  Ég geri ráð fyrir að fara í fyrramálið í Tónlistarskólann að æfa mig á píanóið (stigspróf í vor).  Svo vandast málið.  Hamrahlíðarkórinn er með tónleika í Hömrum kl. 17.00, en ég er að fara á Hattaball kvennakórsins Vestfirsku Valkyrjurnar annað kvöld og til að vera tilbúin á ballið kl. 20.00 þá gæti orðið erfitt að fara á tónleikana.  Þau eru reyndar líka að syngja í kvöld út í Bolungarvík og á Flateyri og Þingeyri á sunnudaginn þannig að það er aldrei að vita nema maður skelli sér í gegnum göngin á sunnudaginn í staðinn.

Á mánudaginn hefst svo þriggja daga alþjóðleg ráðstefna um innflytjendur í dreifbýli og verður heilmikið um að vera í kringum hana - hvet alla sem geta til að mæta, hlusta og taka þátt í umræðunum!  Já, þessi ráðstefna dekkar s.s. mánudag, þriðjudag og miðvikudag.  Auk þess er Umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar með íbúafundi vegna aðalskipulagsvinnunar þessa sömu daga.  Á fimmtudaginn er síðasti íbúafundurinn, auk þess sem Drekktu betur er á Langa Manga.  Það á eftir að koma í ljós hvort ég skelli mér í spurningasvörun eða hvort ég njóti þess að vera heima til tilbreytingar og horfi á vin minn Hugh Laurie, sem ég ætlaði engan vegin að muna nafnið á í gær Blush, í þættinum House Cool

... og þá er kominn föstudagur aftur.  Haldið þið að mér eigi eftir að leiðast?  Svona er þetta alltaf, meir en nóg að gera - og þarna var ég eingöngu að telja upp einstaka atburði, þ.e. sleppti að minnast á vinnuna, tónlistarskólann og námið, föstu punktana í lífinu og tilverunni.  Eftir næstu viku hefst svo Skíðavikan ... púff, ætla ekki að ræða valkvíðann sem er framundan Halo

Í upphafi þessa pistils, sem er orðinn alltof langur, velti ég upp þeirri spurningu hvort hugsanlegt sé að viðhorf fólks gagnvart landsbyggðinni - Vestfjörðum - byggist á fordómum.  Hvað haldið þið? 

Besta leiðin til að takast á við fordóma er að viðurkenna þá og kynna sér málin betur.  Þess vegna skora ég á þá sem eru neikvæðir gagnvart Vestfjörðum að fara leiðina sem ég er að nota gagnvart sveitatónlistinni og skella sér einfaldlega vestur - Skíðavikan og Aldrei fór ég suður framundan, sjaldan betra tækifæri til að kynnast hinum raunverulegu Vestfjörðum Grin 

Ég lofa ykkur að það er minna mál en þið haldið!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: erlahlyns.blogspot.com

Mikið svakalega voru þessi ummæli Hrafnhildar klaufaleg...

Þar sem ég bý nú svo vel að hafa nokkrum sinnum (of sjaldan!) komið til Ísafjarðar get ég tjáð mig um að það hefur nánast vakið furðu mína hvað það er alltaf mikið um að vera í félags- og menningarlífinu. Vissulega er líka margt að gerast hér í borginni en stemningin er einhvern veginn vinalegri úti á landi og þátttaka almennari. 

Mér finnst það góð uppástunga hjá þér að fólk fari sömu leið og þú í kántrígeiranum :)

erlahlyns.blogspot.com, 23.3.2007 kl. 20:11

2 Smámynd: Hrefna Katrín Guðmundsdóttir

Áfram Ísafjörður! :)

Hrefna Katrín Guðmundsdóttir, 23.3.2007 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband