Kúrekalag dagsins

Jæja, þetta gengur betur en ég átti von á ... Spilaði Catan í gær, hef líklega sjaldan verið jafn léleg og í gær Pinch  Verð að taka mig á og slá í gegn í næsta spili Woundering

Val á Kúrekalagi dagsins verður æ erfiðara.  Nú er laugardagur og Hattaball í kvöld, en ég verð að viðurkenna að lög dagsins eru frekar afslöppuð og kannski pinku döpur, en áhugaverð þrátt fyrir það Joyful

Fyrri kúreki dagsins er enginn annar en goðsögnin Willie Nelson.  Fyrra lagið er coverlag, útgáfa hans af laginu Georgia on my mind, lag sem líklega er þekktast í flutningi Ray Charles.  Seinna lagið er hins vegar lagið Cowboys are secretly, frequently (fond of each other) sem er frægt fyrir að fjalla um samkynhneigð kúreka.  Verð að viðurkenna að það hefur komið mér skemmtilega á óvart hvað margir sveitatónlistarmenn virðast vera óhræddir við ádeilur Smile

Seinni kúreki dagsins er hljómsveitin Lonestar.  Lagið er ein vinsælasta ballaða þeirra, lagið Amazed.  Alveg ótrúlega rómantískt lag, ekta til að vanga við á balli - síðasta lag fyrir lokun InLove 

Er búin að setja lögin inn á spilarann, endilega tékkið á þeim - ég er hins vegar farin að gera mig tilbúna fyrir hattaballið, nokkuð sem ég ætti að vera löngu búin að gera - meira um ballið síðar Police


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrefna Katrín Guðmundsdóttir

Góða skemmtun á hattaballinu :) Hljómar rosa skemmtilegt :)

Hrefna Katrín Guðmundsdóttir, 24.3.2007 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband