Afslöppun og íhugun

Helgin hefur verið yndisleg - ein af þessum helgum þar sem ég gerði akkúrat ekki neitt - en samt svo margt Halo  Tók því rólega - enda nauðsynlegt að safna kröftum fyrir páskana.  Tók því reyndar svo rólega að ég man varla hvað ég gerði um helgina LoL  Rámar þó e-ð í sjónvarpsgláp, tiltekt, vangaveltur um lífið og tilveruna, píanótíma og ísrúnt yfir í Önundarfjörðinn þar sem við litla systir lentum í smá sandstormi sem fyllti bílinn af sandi (löng saga). 

Er annars enn að reyna að raða saman skíðavikudagskránni minni - en það er einfaldlega of mikið um að vera.  Held að málið sé að mæta á setningu Skíðaviku á miðvikudaginn og snúa sér svo við og horfa á Sprettgöngu Núps - svona rétt áður en haldið verður á vínsmökkunarnámskeið á Skrifstofuhótelinu.  Þaðan verður dagskrá kvöldsins haldið áfram - tónleikar, miðnæturmatur og jafnvel e-ð fleira er allt inn í myndinni.

Fimmtudagurinn er enn óráðinn en nokkrir atburðir eru inn í myndinni s.s. skíðaskotfimi upp á dal og Drekktu betur á Langa Manga.  Föstudagur og laugardagur eru auðveldari viðureignar, en þá er Aldrei fór ég suður að sjálfsögðu málið og jafnvel ball eftir að hátíðinni líkur - sjáum til hvernig þetta fer, á örugglega eftir að skipta um skoðun reglulega eins og venjulega FootinMouth Ætla fyrst og fremst að njóta þess að vera í fríi og slaka á Wink 

Btw setti inn lag til minningar um páska fortíðarinnar - "Mér finnst rigningin góð" með hljómsveitinni SSSól - hver man ekki eftir páskaböllunum í Hnífsdal? Whistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hey vínsmökkunarnámskeið...

er möguleiki á að komast memm á það????

- Edda Katrín

Edda Katrín (IP-tala skráð) 2.4.2007 kl. 21:43

2 Smámynd: Albertína Friðbjörg

Hey, djö væri það skemmtileg hugmynd - tékkaðu á Skrifstofuhótelinu, skilst að það sé fullt en aldrei að vita  þú ert þó að sjálfssögðu og án efa velkomin að vera memm þegar því lýkur - enda verður kvöldið aðeins ungt þá

Albertína Friðbjörg, 2.4.2007 kl. 21:47

3 Smámynd: Hrefna Katrín Guðmundsdóttir

Ég ætla ekki á vínsmökkunarnámskeið með þér, það er held ég alveg pottþétt... Verð uppi á dal ef einhver fer að leita að mér ;) En auðvitað er Aldrei fór ég suður á dagskránni og auðvitað ball, alveg ómissandi :þ

Hrefna Katrín Guðmundsdóttir, 2.4.2007 kl. 22:25

4 Smámynd: Albertína Friðbjörg

og við hittumst auðvitað hressar og kátar á e-m þessara staða - ef ekki öllum

Albertína Friðbjörg, 2.4.2007 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband