Sunnudagur, 22. apríl 2007
Nóg að gera ...
Sæl öllsömul,
það er einfaldlega búið að vera meira en nóg að gera síðustu daga og þ.a.l. hefur verið minna um bloggfærslur en áður. Reyndar er líka alveg heill hellingur að frétta.
Ég skellti mér ásamt mömmu og pabba og fleirum á Óbeislaða fegurð á miðvikudagskvöldið og ég verð að segja að það er töluvert siðan ég hef skemmt mér jafn konunglega. Ég tek ofan fyrir því góða fólki sem stóð að þessari skemmtilegu og "meðvituðu" hátíð.
Ég gleymdi auðvitað myndavélinni heima, aldrei þessu vant, en pabbi mundi eftir sinni og gaf mér góðfúslegt leyfi til að birta nokkrar myndir hér:
Þarf hins vegar að drífa mig í Tónlistarskólann núna - stefnan er tekin á 7. stigið í maí og þá þarf víst að æfa sig - Fleiri fréttir síðar í dag!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.