Fimmtudagur, 10. maí 2007
Örstutt...
Mjög stutt í þetta skiptið - Eurovision á eftir og ég á eftir að fara í sturtu eftir skokk dagsins. Það var reyndar meira struns í þetta skiptið, en ég labbaði inn í Bónus með mömmu Lóðin voru þó á sínum stað og enn og aftur, þvílíkur munur! Ég verð að viðurkenna að ég var með smá harðsperrur í dag eftir skokkið í gær - sem er hið esta mál¨Veit þá að ég hef reynt e-ð á mig. Hef verið að vandræðast með að finna e-ð nart og uppgötvaði í te-inu hjá Védísi um daginn að þurrkuð trönuber eru bara góð - keypti slík í Bónus áðan og ætla að ath hvernig þau virka
Bréfið frá Aberdeen kom í dag Nú er bara að senda til baka staðfestingu á að ég vilji fara þangað og þá fæ ég sendar upplýsingar um húsnæði og aðrar slíkar praktískar upplýsingar En já, farin í sturtu og svo að baka pizzu og glápa á Eurovision - svo er pælingin að kíkja á Langa Manga ... over and out!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.