Sunnudagur, 15. júlí 2007
I'm walkin' on sunshine
Já, nokkuð góð setning til að lýsa veðrinu og hvernig það hefur verið á Ísafirði í sumar Sól dag eftir dag eftir dag - Fór í tvo göngutúra, annan upp á skíðaveg og inn í skóg í síðustu viku og í dag labbaði ég með Þórunni Önnu og Bríeti Ruth upp í Naustahvilft. Alltaf gaman að fara í góðan göngutúr, sérstaklega í góðu veðri.
Annars er ósköp lítið að frétta af mér - búið að vera heilmikið að gera í vinnunni, sem er alltaf gaman. Styttist í sumarfrí samt. Stefnan er sett á Hesteyri í þarnæstu viku, 25. júlí nánar tiltekið, miðvikudag fram á sunnudag. Það verður vonandi gott veður eins og alltaf á Hesteyri og ég held að málið sé að taka nokkra öfluga göngutúra um svæðið. Svo er það auðvitað Verslunarmannahelgin hér á Ísafirði í þetta skiptið - Mýrarboltinn og fullt af fólki í heimsókn - held að Ísafjörður verði algerlega málið þetta árið.
Meira síðar.
Myndir úr göngutúrunum má finna hér.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.