Mánudagur, 30. júní 2008
Mánudagsmorgun ...
á fætur ég fer ...
Reyndar er höfuðið ekk' eins og gler, en mikið hefði verið ágætt að sofa örlítið lengur Glaðvaknaði reyndar klukkan hálf sex í morgun, en fannst örlítið of snemmt að fara á fætur þá og sofnaði innan skamms aftur og vaknaði svo auðvitað alltof seint aftur
Tímatakan í Óshlíðarhlaupinu á laugardaginn gekk vonum framan. Ég fór svo á meiriháttar trúbadortónleika og virkilega skemmtilegt ball með hljómsveitinni Hraun á laugardagskvöldið, fór með skemmtilegu fólki og hitti fullt af skemmtilegu fólki og já, virkilega góð skemmtun
Annars er það býsna strembin vika framundan, full af fjöri og gleði - vinnu og meiri vinnu
Örfáar myndir að lokum ... teknar í Holtsfjöru í Önundarfirði
Meira síðar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.