Sunnudagur, 10. ágúst 2008
Ó borg mín borg
Jebb, þið lásuð rétt - ég er á leið suður, bara í örstutt skrepp reyndar. Fer suður seinni part á þriðjudag og heim aftur á miðvikudag
Hef annars verið bara að vinna á fullu og þess á milli hef ég verið alveg hreint óhemju hrikalega löt eins og gerist alltaf hjá mér seinni parts sumar e-a hluta vegna
Hef þó ekki verið latari en svo að ég hef drifið mig í göngutúr bæði í Stórurð og Tunguskóg Tók nokkrar skemmtilegar myndir þar ...
Þessi skógarguð er í Tunguskógi
Og þessi í Stórurð ...
Já, ég verð eiginlega að nota tækifærið og hvetja fólk til að skella sér í skógarheimsókn, alveg ótrúlegt hvað trén hafa vaxið - bæði inn í skógi og upp í Stórurð (hvernig svo sem þetta er skrifað) - og stígarnir hafa verið lagfærðir heilmikið og nýjir búnir til Virkilega flott mál og um að gera góða veðrið á meðan það helst. Verst hvað það hafa verið miklir þurrkar, lækirnir inn í skógi farnir að þorna og aðeins þurrir árfarvegirnir eftir
Fleiri myndir að venju á flickrinu
En jæja, bíó á eftir og nóg að gera ...
Meira síðar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.