Nýtt ár, nýjir tímar?

Gleðilegt ár kæru vinir og takk fyrir það gamla Smile

Ég er búin að hafa það svo svakalega gott yfir hátíðarnar að ég hef ekki einu sinni haft nennu til að blogga ... hversu slæmt er það? Wink 

Jólin voru auðvitað að venju yndisleg og ég fékk fullt af fallegum gjöfum.  Áramótin voru einnig stórfín og var myndavélin auðvitað tekin upp ...

Fyrst var farið á brennu ...

3157910498_41e02ce362

Svo var skotið upp flugeldum ... og teknar myndir af þeim ... Smile

3157082267_4fc868f50f

3157911902_575dddd422

3157082379_5dbf536ca6

Á nýársdag fór ég svo ásamt litlu systur yfir í Holt í Önundarfirði þar sem ég var að organistast um hátíðarnar, þ.e. jóladag og nýársdag.  Verð að viðurkenna að mér finnst það alveg virkilega jólalegt að njóta þessa tíma við að spila á orgelið, hlakka alltaf til Smile

Veðrið á nýársdag var alveg hreint stórkostlegt og tók ég næstu tvær myndir þann dag, aðra úr Holti í Önundarfirði og hina frá Kofra í Skutulsfirði.

3157081045_a6ac7dc54e

3157080793_d996307916

Vona bara að þessi fallegi dagur sé vísbending um hvernig restin af árinu verður Halo

Áramótaheit spyrja allir um ... aðeins eitt í gangi hér ... að rífa mig upp úr botnlangabólgusleninu Wink   Hvað með ykkar?

Meira síðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Gleðilegt nýtt ár Albertína og takk fyrir gamla bloggárið.

Jú ég ætla að ganga 10 til 15 kílóum léttari inn í kjörklefann í vor og setja  x við ?? - þegar við kjósum nýtt Alþingi fyrir nýja Ísland.

Eigum við Vestfirðingar ekki von á því að sjá nafnið þitt á kjörseðlinum ?

Myndirnar þínar eru að venju mjög fallegar.

Gangi þér allt í haginn á nýju ári.

Níels A. Ársælsson., 12.1.2009 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband