Þriðjudagur, 17. febrúar 2009
Afmælisdagur
Klukkan er rétt rúmlega átta þennan fallega morgun. Búin að borða hinn daglega hafragraut og ég er í rólegheitunum að undirbúa daginn.
Það sem er þó ólíkt við þennan dag miðað við aðra daga er að í dag verða kökur með skóladótinu. Kökur sem ég eyddi gærkvöldinu í að baka Var reyndar örlítið, en þó aðeins örlítið, panikk þegar rafmagnið fór þegar seinni kakan átti 5 mínútur eftir inn í ofninum En það reddaðist allt, sem betur fer ... eða ég vona það a.m.k., hef auðvitað ekki smakkað kökuna Nú er bara eftir að að þeyta rjóma og svoleiðis smotterí áður en ég held í skólann.
Ástæðan fyrir öllu þessu stússi er auðvitað að ég á afmæli í dag. Orðin 29 ára gömul, sem mér finnst algerlega frábært Hvað er skemmtilegra en að eldast? Hmm.. örugglega margt reyndar, en mér finnst bara svo stórkostlegt að hugsa til baka yfir 28. aldursárið og rifja upp allt það nýja sem ég lærði og kemst hreinlega ekki hjá því að hlakka til alls þess sem ég mun læra á 29. aldursárinu sem ég held að verði ennþá skemmilegra en það síðasta
Annars er allt gott að frétta. Tókst að skila ritgerðinni sem ég var að skrifa síðustu viku, fékk góða vini í kjötsúpu á laugardagskvöldið og á sunnudaginn fór ég í göngutúr með litlu systur í góða (vor)veðrinu. Í gær byrjaði ég svo í áfanga í Haf- og strandsvæðanámi Hsvest (Conflict resolution in resource management) sem ég er að taka í tengslum við master's námið mitt í HÍ. Lýst bara mjög vel á þetta, skemmtilegur kennari og frábærir samnemendur Í kvöld kemur svo fjölskyldan í mat sem er alltaf gaman, er meira að segja svo skipulögð í þetta skiptið að ég er byrjuð að elda - setti kjúklinginn í mareneringu í gær, við litla systir öngum af hvítlauk og rommi
En jæja, þarf víst að þeyta rjóma áður en ég fer.
Meira síðar.
Athugasemdir
Til hamingju með afmælið Albertína mín
Fallegar myndir
Sigrún Jónsdóttir, 17.2.2009 kl. 08:35
Til hamingju með afmælið :)
Hrefna Katrín Guðmundsdóttir, 17.2.2009 kl. 19:56
Hæ hæ og til hamingju með afmælið.. þó seint sé!
Alveg eru myndirnar þínar frábærar! Svo gaman að koma hingað og sjá mynd af polli við göngustíginn frá menntaskólanum og hugsa - SVONA er það þegar veturinn er að fara! Ég fæ bara heimþrá, það hlýtur að vera gæðastimpill á myndirnar :)
Bestu kveðjur úr vetrarríkinu í Osló - Hláka og snjóhrun af þaki í dag, vonandi er vorið á næsta leiti!
Sigga
Sigga (IP-tala skráð) 22.2.2009 kl. 20:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.