Albertína og góðu hugmyndirnar...

Já, eins og ég sagði ykkur frá í gær þá langaði mig voðalega mikið að fá mér svona lóð á fæturna eða hendurnar til að auka erfiðið aðeins.  Eftir vinnu í dag á leið í tónlistarskólann þá fékk ég þá snilldar hugmynd, að því er mér fannst þá, að koma við í Hafnarbúðinni - sem ég og gerði.  Þar keypti ég lodamyndeftir smá vangaveltur pakka með 2x1kg lóðum í.  Lóðin eru með frönskum rennilás þannig að þau mynda hólk utan um annað hvort ökkla eða handleggi - voða flott og sniðug!  Ákvað s.s. að 1kg væri alveg nóg til að byrja með, fyrir utan að það munaði 1000 kr á þessum og næsta fyrir ofan (1,5kg).  Ekkert nema gaman af því.  Ég skrópaði á kóræfingu og fór svo í tónlistarskólann til að æfa mig.  Var þar í rúman klukkutíma eða til að verða sjö.  Þá fór ég og leitaði matar og spjallaði svo aðeins við ömmu áður en ég lagði af stað í skokkið - já, með nýju lóðin. 

OMG! Úff, ég var næstum búin að gefast upp nokkrum sinnum á leiðinni en neinei, ég dröslaði sjálfri mér áfram og skokkaði sem áður u.þ.b. 2/3 leiðarinnar og fór um 4 km.  Hafði verið að hugsa um að fara lengra áður en ég fór af stað, en þar sem ég var algerlega búin á því þá ákvað ég að gera í staðinn 10 auka magaæfingar, gerði s.s. 60 magaæfingar.  Fjúff, hverjum hefði grunað að það munaði svona mikið um saklaus kíló á sitthvorum fætinum?! Woundering

Hvað um það, það var enn jafn skemmtilegt að skokka, og já, ég virðist vera búin að finna lausn á ilinni, keypti svona geldót til að setja í hælinn og þetta var allt annað líf Smile  Annars er ég svo algerlega búin á því akkúrat núna að ég er komin í náttfötin og ætla að hafa það gott það sem eftir er kvöldsins ... finnst ég eiginlega alveg eiga það skilið fyrir að hafa ekki gefist upp Wink

Er held ég búin að ákveða hvað ég ætla að kjósa á laugardaginn en ég get deilt því með ykkur að það verður sko ekki XD eftir heimsókn herra samgönguráðherra í morgun - ótrúlegur málflutningur hjá XD gegn Framsóknarflokknum og öðrum flokkum reyndar.  Ráðherra gaf það í skyn (og ekki fyrsti frambjóðandi XD sem ég heyri gera það) að sjálfstæðisflokkurinn hefði verið einn í ríkisstjórn síðustu kjörtímabil og allt væri þeim að þakka ... tja, fólk er þá greinilega svakalega ánægt með ríkisstjórnina (XD) miðað við fylgið sem þeir eru að fá - en aldrei er neitt sem fer úrskeiðis eða er ekki nógu gott þeim að kenna, nei, þá eru það vondu stjórnarandstöðuflokkarnir eða ráðherrar framsóknarflokksins sem er um að kenna... já, takk fyrir að hjálpa mér að ákveða mig Halo


Örstutt að venju

... frá skokki dagsins.  Fór stutt í dag, fór nefnilega þannig að þegar ég labba út þá rakst á á vinkonu mína sem var að labba með hundana sína.  Ég labbaði auðvitað með henni svolítinn spöl og endaði í te og þurrkuðum ávöxtum heima hjá henni.  Ég hins vegar hljóp til baka eftir tebollann, fór ca 1 km og tók svo 50 magaæfingar í garðinum. 

Þakka hins vegar allar góðu ábendingarnar varðandi ilina.  Stefnan er sett á morgun í skóbúðina að kaupa smá innlegg.  Er nefnilega í þessum líka fínu skóm, en held ég þurfi bara smá stuðning við ilina.  Svo er það auðvitað rétt sem þið bentuð á, það er víst ekkert sérlega hollt að hlaupa á malbiki.  Ég er hins vegar núna orðin algerlega háð því að fara út að skokka eftir vinnu eða á kvöldin.  Í byrjun gerði ég þetta með hálf hangandi hendi, bara því ég kunni ekki við að ljúga því á blogginu að ég hefði farið.  Núna er þetta hins vegar orðið algert "must" að fara út, þó ekki sé nema bara stutt eins í kvöld.  Ipod-inn er líka algerlega að gera sig - ekkert skemmtilegra en að fara út að skokka með góða tónlist, nema hugsanlega með góðum vin/konu að spjalla við. 

lodEr reyndar alvarlega að íhuga að ganga skrefinu lengra og kaupa mér lóð til að setja á úlnliðina eða ökklana, bara til að fá enn meiri þjálfun út úr þessu.  Ætla að kíkja í "nýju" Hafnarbúðina á morgun og skoða verð og útlit og allt það. 

 Annars er ósköp lítið að frétta.  Nóg að gera í vinnunni að venju og enn er ég að æfa á fullu fyrir stigsprófið, hvenær svo sem það verður en það gengur víst e-ð erfiðlega að fá prófdómara.  En svona til gamans þá tók ég upp þegar ég var að æfa mig á laugardaginn og ef þið smellið hér þá getið þið hlustað á mig spila æfingu eftir Czerny.  Endilega kommentið á hvort þið haldið að ég muni ná prófinu ... afsaka léleg hljóðgæði - ekkert fullkomnustu græjur í heimi sem ég var að nota - gaman að prófa þetta samt Wink


Skokk dagsins

Jebb, var að koma inn úr skokki dagsins - fór líklega ca 4 km og tók svo 50 magaæfingar.  Er þvílíkt ánægð með hvað ég get skokkað alltaf meira og meira í hvert skipti.  Ökklinn er reyndar farinn að kvarta svolítið á kvöldin, en ekkert alvarlega þó.  Hef meiri áhyggjur af litla vöðvanum undir ilinni sem er farinn að kvarta svolítið, er stífur og leiðinlegur.  En ég læt svoleiðis ekkert stoppa mig.  Nota bara Voltaren gel og þá er það búið Wink  Ef þið kannist við svona vandamál og hafið fundið lausn, þá megið þið endilega láta mig vita.  Annars er á mörkunum að vera of kalt til að skokka úti - ef þið sáuð e-n bolta rúlla eftir gangstígnum þá var það að öllum líkindum ég, dúðuð í peysu, hettupeysu og vindjakka.

Annars ósköp lítið að frétta - Bíð bara spennt eftir að kosningabaráttunni ljúki, ég er orðin alveg hreint innilega þreytt á spjallþáttum og skoðanakönnunum.  Ég er kannski ein um það en mér hefur fundist þessi kosningabarátta snúast um e-ð allt annað um málefnin.  Hún hefur fyrst og fremst snúist um fjölmiðla og skoðanakannanir.  Hvernig er það annars, eruð þið búin að kynna ykkur stefnuskrár allra flokka? 

Ég verð líka að taka undir það með Grími Atlasyni bæjarstjóra í Bolungarvík að við höfum ekki fengið nógu skýr svör frá framboðunum hvað þau vilja gera til að hjálpa okkur að byggja upp Vestfirði.  Það framboð sem gefið mér þau svör undanbragðalaust gæti jafnvel fengið mitt atkvæði á laugardaginn Halo 

Hvað um það, þó ég sé enn að hlægja af sögunni af frambjóðandanum sem hélt því fram að hagvöxtur á Vestfjörðum væri í raun jákvæður þar sem íbúum hefði fækkað svo og gleymst hefði að taka inn í fækkun íbúa í útreikninginn í -6% hagvextinum, þá hlakka ég mikið til að þessari kosningabaráttu ljúki - Þá kemur í ljós hvaða framboð kunni að nota fjölmiðlana og skoðanakannanirnar best - eða hvaða framboð hafði vit á að forðast fjölmiðlana hvað mest og þegja og fá flest atkvæði að þökkum Whistling 


Örstutt

Til að staðfesta hreyfingu dagsins - skokkaði frá Eyrargötunni inn í Bónus - nokkuð nett (ca 3 km).  Veðrið hefði reyndar getað verið girnilegra, 3°C og rok, auk þess sem ég er ekki frá því að það hafi lent á mér nokkur snjókorn líka, jájá, þið lásuð rétt, nokkur snjókorn.  Hins vegar þegar ég labbaði út úr Bónus (nýtti auðvitað tækifærið og verslaði) var komin hálfgerð rigning, sem síðan varð ekkert úr. 

Var annars að tala við vinkonu mína í Noregi og fékk tölvupóst frá Svíþjóð.  Þar mun vera +20°C og ég verð að viðurkenna að ég væri alveg til í að svo væri hérna líka.  Ég hugga mig við að það eru 14°C núna í Aberdeen þannig að ég fæ vonandi að njóta svona góðs vorveðurs næsta vor Cool

Annars er eiginlega ekki hægt að kvarta undan veðrinu hérna þó það mætti vera hlýrra.  Síðustu vikur hafa verið alveg ótrúlega góðar - alveg þangað til núna þessa helgina Smile  Er meira að segja farin að hallast að því að vorin séu uppáhaldsárstíminn minn.  Allt einhvernveginn að vakna úr dvala eftir veturinn og ef maður leggur vel við hlustir þá má heyra hvernig allt titrar af spenningi fyrir sumrinu.  Á þessum tíma verður maður líka enn meðvitaðari um alla litlu hlutina sem gleðja mann og hjálpa til við að gleyma öllu öðru. - Sólin sem skín inn um gluggann, ís með dýfu, sms og símtöl frá góðum vinum, bréf og tölvupóstar, gulur blýantur með strokleðri, lagið sem minnir þig á síðasta sumar, brumið á trjánum og litlu blómin sem gægjast upp úr moldinni. 

Vona að þið hafið líka e-ð smátt að gleðjast yfir á þessu sunnudagskvöldi Happy

P.S. takk kæru vinir fyrir allar góðu kveðjurnar sem ég fékk varðandi Háskólann í Aberdeen og eins aðstoðina við aðhaldið Wink


Síðustu dagar

Hafa farið í algera afslöppun Smile  Ég labbaði/skokkaði tæpa 6 km í gær með litlu systur.  Reyndar fór dagurinn í hálfgera vitleysu.

Málið var nú þannig að það var smá vindur hérna á Ísafirði, auk þess sem okkur langaði til að breyta aðeins um umhverfi.  Okkur datt þá í hug að skella okkur einfaldlega á milli fjarða, yfir í Dýrafjörðin nánar tiltekið, enda hlyti að vera betra veður þar í austan áttinni Woundering  Það fór þó ekki betur en svo að þar var einfaldlega hífandi rok, töluvert hvassara en hafði verið heima.  Við gengum/fukum þarna e-n tæpan kílómetra - en gáfumst upp að lokum og ákváðum að finna betra veður.  Upp á Gemlufallsheiðinni leit út fyrir að vera virkilega flott veður - glampandi sól og minni vindur.  Við stoppuðum því og ætluðum að ganga eftir gamla veginum e-n spotta.  En nei, um leið og við stigum út úr bílnum kom rokið sem hafði greinilega elt okkur úr Dýrafirðinum.  Við sáum því þann kost vænstan að fara aftur yfir á Ísafjörð.  Þar hafði lægt nokkuð þannig að ákváðum að skella okkur heilsumíluna, gengum þar og skokkuðum til skiptis, okkur vonandi til heilsubótar Tounge

Annars er ósköp lítið að frétta, ætla að skella mér í göngutúr á eftir og halda áfram tiltekt í herberginu - er að nýta tækifærið og minnka aðeins draslið svo það verði minna að pakka til Skotlands í haust Happy  Svo er það bara vinna eins og hjá flestum á morgun.  Annars var ég að sjá það í Fréttablaðinu í dag að það er verið að auglýsa 3 ný störf hjá Háskólasetri Vestfjarða... hmm... ég var kannski óþarflega pirruð á föstudagskvöldið, sjáum til Wink


Kannski er það bara ég ...

en finnst engum öðrum það skrýtið hvernig það eru að birtast hér og þar hinn og þessi háskólinn?  Orkuháskóli þarna, vísinda- og fræðamiðstöð þarna, alþjóðaháskóli, þetta þar og hitt hér.  - 300 milljónir hér og 200 milljónir þar ... tala nú ekki um 200 milljónirnar sem Byggðastofnun var að setja í akstursbraut á Suðurnesjunum...  Þetta er auðvitað allt hið besta mál, en á meðan virðist ekkert vera að gerast í háskólamálum hérna fyrir vestan.  Ég þekki ágætlega til í Háskólasetrinu og veit að starfsmennirnir þar eru að vinna alveg ótrúlega flott og spennandi starf!! En það er ekki nóg ...

... hvar er stjórn Háskólaseturs?  Eru þau að klást við stjórnmálamennina og reyna að fá aukna háskólastarfsemi vestur?  Eru þau búin að slá hnefanum í borðið og óska eftir því að hér verði byggð upp aukin háskólastarfsemi?  Hafa þau verið að ræða við íslenskt atvinnulíf um að leggja til fjármagn til uppbyggingu háskóla hér?  - Ef þau hafa gert það, hvernig stendur á því að ekkert virðist gerast á meðan verið er að byggja upp háskólastarfsemi annars staðar á landinu af fullum krafti? - Erum við nokkuð að missa af lestinni?

Kristinn Hermannsson hagfræðingur og Ísfirðingur með meiru skrifaði mjög áhugaverða grein á bb.is um daginn.  Virkilega flott grein hjá honum og ég er sammála honum um margt. 

Ég hef að undanförnu verið að vissu leiti að hverfa frá hugmyndinni um sjálfstæðan háskóla á Vestfirði.  Spurning hvort ekki væri eðlilegra í jafn litlu landi og við búum í að við tækjum upp háskólakerfi eins og í Kaliforníu og Missouri í Bandaríkjunum (svona sem dæmi).  Þar er bara einn háskóli með marga "campus"-a.  Sama mætti gera hér.  Í stað þess að vera alltaf að stofna nýja og nýja háskóla yrði Háskóli Íslands styrktur til þess að vera með "útibú/campus" um allt land.  Hvert útibú myndi síðan byggja á styrkleika hvers svæðis og deildir HÍ færðar að e-u leyti á þá staði eins og við á, eða eins og Kristinn bendir á í grein sinni:

,,...byggja upp rannsóknastarfsemi í hverjum landsfjórðungi í tengslum við styrkleika hvers svæðis.  Stofnanirnar gætu svo tekið höndum saman um það nám sem áhugi væri á að bjóða upp á og nýtt tæknina til að ná ásættanlegri stærðarhagkvæmni.  Þannig mætti hugsa sér að hver slíkur héraðsháskóli miðlaði í fjarkennslu þeim fögum sem mestur styrkur væri í og því yrði nám á hverjum stað byggt á samblandi staðkennslu og fjarkennslu.  Auðvitað væri eftirsóknarvert að tengja þær æðri menntastofnanir sem fyrir eru við þetta háskólanet.  Þannig mætti auka hagkvæmni og gæði í krafti sérhæfingar og samanburðar."

Já, kannski er það bara ég en hvernig stendur á þessu?


mbl.is Vísinda- og fræðamiðstöð byggð upp á Keflavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djös....

ansk, ég var búin að skrifa rosa rosa langa og skemmtilega færslu áðan en neinei, ég rakst í takka og það hvarf allt Frown Þið fáið þetta bara í stikkorðastíl í staðinn:

- Var næstum búin að svindla strax á fyrsta degi
- Bloggaðhald virkar
- Fór 3 km og skokkaði 2/3 leiðarinnar
- Tvær magaæfingar
- Fór í tíma/æfingu í Tónó
- Fór á fund með Lísbeti hjá RKÍ
- Áhugavert verkefni, takið þátt
- Er mjög hamingjusöm yfir ýmsu
- Er pinku pirruð yfir ýmsu
- En bloggaðhaldið virkar Wink

 


Ég vildi að það væri kominn júní ...

hefur verið skrifað í "persónulegu skilaboðin" mín á msn-inu síðustu daga.  Veðrið undanfarna daga hefur reyndar verið þannig að halda mætti að sumarið sé komið nú þegar Cool  Meira að segja gamla góða sumarþokan farin að láta kræla á sér og ánamaðkarnir farnir að skríða upp úr jörðinni og upp á gangstéttarnar.

Á tímabili langaði mig svo mikið að það væri komið sumar að ég var alveg til í að sleppa bara maí.  Reyndar grunar mig að þar spili inn í yfirvofandi stigspróf en hvað um það, ég hef snarlega skipt um skoðun.  Ég hef ákveðið að gera sem mest úr maí og reyna að koma mér í aðeins betra form fyrir sumarið (aðallega til að geta tekið almennilegar gönguferðir sem eru á stefnuskránni í sumar og líka svona til að geta notað bikiní-ið sem ég keypti á Hawaii Halo).  Ég er því komin með plan og ætla að nýta þessa síðu og pína ykkur lesendur góðir til að veita mér smá aðhald. 

Planið er sem sagt þannig að frá og með morgundeginum mun ég fara daglega í göngutúr og gera magaæfingar sömuleiðis daglega.  Daglega mun ég skrá á síðuna ca. hversu löng vegalengd var gengin og hversu margar magaæfingar ég gerði.  Jafnframt ætla ég að æfa mig á píanóið á hverjum degi fram að stigsprófi.  Í ofanálag ætla ég að minnka brauðát mitt, þ.e. hvíta hveitið.  Einu löglegu afsakanirnar fyrir því að sleppa úr dögum eru veikindi.

Heh, sjáum til hvernig þetta gengur - en ég treysti á ykkur að skamma mig ef ég klikka Whistling


Akureyri að morgni - Ísafjörður að kveldi

Já, síðustu dagar hafa verið svo sannarlega annasamir.  Eftir vinnu á fimmtudaginn brunaði ég út á Ísafjarðarflugvöll og flaug norður til Akureyrar.  Reyndar flaug ég fyrst suður til Reykjavíkur, hinkraði þar í svo sem klukkutíma ásamt Rúnari Helga og Valdimar, kennurum við Menntaskólann á Ísafirði.  Þeir voru á sama flakki og ég, en við vorum öll fyrirlesarar á Ráðstefnu um íslenska þjóðfélagsfræði.  Ég verð að viðurkenna að ég var orðin pinku óspennt fyrir að fara, en ég hafði fattað skömmu áður að Fossavatnsgangan var sömu helgi. 

Ég gat þó ekki sleppt þessu frábæra tækifæri til að kynnast íslenskum fræðimönnum á þessu sviði og ég sá svo sannarlega ekki eftir því að hafa drifið mig norður.  Þetta var mjög vel skipulagt og verð ég að óska skipuleggjendunum til hamingju með góða, fræðandi og síðast en ekki síst, stórskemmtilega ráðstefnu.  Ég var pinku stressuð að tala þarna en ég held að það hafi heppnast ágætlega.   Ég talaði sum sé í fyrsta hollinu á föstudeginum og gat því notið þess að slaka á það sem eftir var ráðstefnunnar.  Á föstudagskvöldinu skelltum við okkur á Strikið að borða og síðan að dansa á Rúnari Þór á Vélsmiðjunni.  Þar var Rúnar að taka gömlu góðu slagarana og ég held að það sé óhætt að segja að þetta hafi verið mjög góð skemmtun. 

Ég vaknaði nokkuð hress á laugardagsmorguninn, henti draslinu aftur í tösku og brunaði upp í Sólborg, hús Háskólans á Akureyri þar sem ég náði fyrsta fyrirlestra hollinu þann daginn áður en ég fór á flugvöllinn.  Ég flaug suður eins og áður en flogið var vestur - beið aðeins lengur á flugvellinum í þetta skiptið, en skemmti mér vel - enda komin smá tilhlökkun fyrir kvöldinu Smile  Flugferðin gekk vel, enda með afbrigðum frábært veður, alveg sérstaklega á Ísafirði Joyful 

Ég fór beint af flugvellinum í íþróttahúsið á Ísafirði þar sem verðlaunaafhending Fossavatnsgöngunar var í fullum gangi.  Það var áberandi í húsinu gríðarleg ánægja með mótið og skipulag þess og ekki spillti veðrið fyrir Happy  Þegar verðlaunaafhendingunni lauk skaust ég heim til að skipta um föt fyrir kvöldið.  Um kvöldið var þessi líka góði matur og skemmtun í íþróttahúsinu í tengslum við gönguna.  Þarna voru allir kátir og var mikið sungið og skálað.  Þaðan hélt hópurinn niður á Langa Manga sem fylltist ansi fljótt.  Þar sem allir voru í stuði til að dansa þá var í framhaldi haldið á Krúsina þar sem var dansað fram á morgun.  Að lokum var haldið heim á leið og kærkominn svefn tók við. 

Dagurinn í dag hefur ekki verið mikið rólegri - vaknaði í góða veðrið í morgun og rölti í Tónlistarskólann - Restin af deginum fór meir og minna í það að þrífa bílinn - enda átti hann greyið skilið að fá vorhreingerningu Wink 

Vikan er framundan og spennandi tímar einnig.  Markmið vikunnar er að taka til í herberginu eftir sprengjuárás sem það varð fyrir á fimmtudaginn og aftur í gær ...

Meira síðar.


Já, gott að eyða tíma á sunnudegi í svona afþreyingu ...

You Are An ESTJ
The Guardian

You're a natural leader and quick, logical decision maker.
Goals are important in your life, and you take many steps to acheive them.
You enjoy interacting with others, mostly through work related activities.
Your high energy level means you are great at getting things done!

You would make a great teacher, judge, or police detective.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband