Loksins komið svar ...

og það var jákvætt að auki Grin 

Það er víst orðið óhætt að upplýsa það opinberlega að ég er búin að fá svar við umsókn minni frá Háskólanum í Aberdeen.  Ég er sum sé að flytja til Skotlands í haust, til borgarinnar Aberdeen nánar tiltekið.  Þar mun ég stunda nám í ... tja, veit ekki alveg hvað ég á að kalla það á íslensku ... landsbyggðarfræðum.  Reyndar mun ég fyrst og fremst stunda rannsóknir á því sviði, þ.e. rural research innan landafræðideildarinnar.  Þau hafa sem sagt boðið mér að koma í rannsóknarmaster (MSc by research) með það markmið að ég haldi svo áfram í doktorsnám (PhD), reyndar held ég að ég sé skráð beint í doktorsnámið, masterinn er bara innifalinn. 

Þetta verða sum sé a.m.k. 1+3 ár sem ég verð í burtu.  Ég verð að viðurkenna að jafn rosalega glöð og ég er yfir þessu svari þá er ég samt líka pinku skelkuð yfir þessu öllu saman.  Er auðvitað komin í frábæra vinnu og líður vel á Ísafirði.  En það er hollt að breyta til og prófa að búa erlendis og ég ætla auðvitað að koma aftur heim.  Smile  Reyndar eru allar líkur á því að ég muni stunda rannsóknir sem tengjast Íslandi og heimahögunum á einhvern hátt þannig að ég geri ráð fyrir að þurfa að koma heim reglulega vegna þeirra.

Já, frábærlega og skelfilegt, allt á sama tíma Tounge  Ég mun þó að sjálfssögðu gæta þess að finna húsnæði þar sem ég get a.m.k. komið fyrir dýnu á gólfinu og vænti þess að sem flestir kíki í heimsókn a.m.k. einhverntíma á þessum fjórum árum Wink

En nú er þarf ég að drífa mig í Tónlistarskólann að æfa mig ... nú verður ekki komist hjá því að taka stigspróf í vor fyrst ég er að fara.  Setti þrjú af lögunum sem ég mun spila á prófinu í spilarann hérna á síðunni, bara svona til gamans Whistling

Meira síðar.


Evrópusambandið og fleira...

Ég fór á alveg hreint stór fínan fund á vegum Evrópusamtakanna og Heimsýnar á laugardaginn.  Þar voru mætir menn mættir á svæðið til að ræða um kosti og galla Evrópusambandsins.  Þorvaldur Gylfason talaði fyrir hönd Evrópusamtakanna og Ragnar Arnalds fyrir hönd Heimsýnar. 

esbfundur

Báðir töluðu af mikilli sannfæringu og komu máli sínu vel frá sér.  Erindi þeirra beggja voru sem sagt góð en alveg sérstaklega þótti mér viðeigandi hjá Þorvaldi að vitna í afa sinn, Vilmund Jónsson þá héraðslækni á Ísafirði.  Tilvitnunin var kraftmikil og öflug og hreif líklega flesta í salnum.  Ég er eftir þennan fund, eins og eflaust margir aðrir, enn sannfærðari um þá skoðun mína að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið.  Ég hef reyndar verið talsvert lengi á þeirri skoðun að Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við ESB og svo leggja samningsdrögin fyrir þjóðaratkvæði eins og Þorvaldur lagði áherslu á í erindi sínu.  Ragnari tókst sum sé ekki að sannfæra mig um annað. 

Svona að lokum verð ég að fagna þessu góða framtaki Evrópusamtakanna og Heimsýnar - enda mikilvægt að upplýst umræða eigi sér stað um allt land og jafnvel alveg sérstaklega á svæðum eins og Vestfjörðum, sem að öllum líkindum gætu nýtt sér kosti Evrópusambandsins mjög vel, líkt og sjá má á reynslu Íra og Skota Wink

Annars er heilmargt fleira að frétta sem ég er ekki tilbúin til að segja frá alveg strax, er að bíða eftir endanlegri endanlegri staðfestingu og ég þori ekki að trúa því alveg fyrr en þessi endanlega endanlega staðfesting berst ... en smá vísbending á meðan - það eru 99% líkur á að ég komi ekki til með að þurfa að bíða eftir að Evrópusambandið komi til mín... Halo


Nóg að gera ...

Sæl öllsömul,
 það er einfaldlega búið að vera meira en nóg að gera síðustu daga og þ.a.l. hefur verið minna um bloggfærslur en áður.  Reyndar er líka alveg heill hellingur að frétta. 

Ég skellti mér ásamt mömmu og pabba og fleirum á Óbeislaða fegurð á miðvikudagskvöldið og ég verð að segja að það er töluvert siðan ég hef skemmt mér jafn konunglega.  Ég tek ofan fyrir því góða fólki sem stóð að þessari skemmtilegu og "meðvituðu" hátíð. 

Ég gleymdi auðvitað myndavélinni heima, aldrei þessu vant, en pabbi mundi eftir sinni og gaf mér góðfúslegt leyfi til að birta nokkrar myndir hér:keppendur_ob_fegurd

framsoknarbordid

 

 

 

 

Þarf hins vegar að drífa mig í Tónlistarskólann núna - stefnan er tekin á 7. stigið í maí og þá þarf víst að æfa sig - Fleiri fréttir síðar í dag!


Nú þarf að taka ákvarðanir og framkvæma!

Nú hefur Vestfjarðanefndin svokallaða skilað af sér.  Nefndin, sem var skipuð í fyrri mánuði af forsætisráðherra, fékk það hlutverk að fjalla um leiðir til að styrkja atvinnulíf á Vestfjörðum.  Nefndin af sér góðri skýrslu með ýmsum góðum tillögum, enda gott og vandvirkt fólk í nefndinni. 

Eins og Grímur Atlason bæjarstjóri í Bolungarvík benti á þá er þetta góð samantekt yfir þær hugmyndir sem hafa komið fram - en nú er það stóra spurningin?! Hvað gerir ríkisstjórnin við þessa skýrslu? - Verða framkvæmdir og ákvarðanir í samræmi við tillögur þær sem komu fram í þessari skýrslu eða verður þetta enn ein fín og flott skýrsla sem verður stungið upp í íbúa svæðisins og síðan ofan í skúffu? 

Staðreyndin er sú að við vitum öll hver staðan er - nú hlýtur að vera kominn tími á aðgerðir.  Því miður er hætt við að menn eigi eftir að gleyma sér í þessari blessuðu olíuhreinsunarstöðvarmáli og gleyma öllum öðrum tillögum, vísa bara til olíuhreinsunarstöðvarinnar sem e-r allsherjar lausnar.  Það er vissulega mál sem ætti að skoða, enda erfitt að henda 500 störfum út af borðinu án nánari athugunnar, en það á ekki að gera fyrr en eftir kosningar og þá á fjórðungsvísu. - Olíuhreinsistöð á ekki að vera kosningamál í þessum kosningum.

Mér þætti hins vegar áhugavert að fá opinbera umræðu um framkvæmd hinna tillagnanna.  Það hefur verið sorglega lítið rætt um þær tillögur í fjölmiðlum t.d. eflingu iðnnáms við Menntaskólann á Ísafirði, uppbyggingu Háskóla og rannsókna, starfsemi Orkubús Vestfjarða og Rarik á Vestfjörðum, Innheimtustofnun sveitarfélaganna verði flutt, aukin heilbrigðisþjónusta, markaðssókn ferðaþjónustu á Vestfjörðum, aukið öryggi í raforkumálum, Hornstrandastofa og Vatnsfjarðar-/Látrabjargsstofa, styrking starfsemi rækjuvinnslustöðva um allt land, jöfnun flutningskostnaðar ... kíkið á skýrsluna til að fá nánari upplýsingar og fleiri tillögur.  

Hvar er umræðan um þessar tillögur?  Hvað getur og ætlar ríkisstjórnin að hrinda í framkvæmd núna?  Hverju eru frambjóðendur tilbúnir til að hrinda í framkvæmd á næsta ári?

Býð spennt eftir svörum.


mbl.is Skoðað að frysta greiðslu afborgana og vaxta lána rækjuvinnsla á Vestfjörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykingabann...

Mikið hlakka ég til 1. júní n.k. Happy
mbl.is Starfsmenn írskra kráa heilsuhraustari vegna reykingabanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helgar...

... eiga tvímælalaust að vera oftar Happy  Ég hef að venju haft það notalegt þessa helgina.  Hef eins og aðrir ekki komist hjá því að fylgjast með fréttum af hinum og þessum landsfundum helgarinnar.  Það hefur reyndar verið töluvert áhugavert að fylgjast með fyrirsögnum á fréttum á netinu og velta fyrir sér út frá hverri fyrirsögn um hvorn landfundinn var um að ræða.  Hér eru nokkur dæmi og giskið þið nú um hvaða flokk er að ræða í hvert skipti:

Annars er nú enn nokkur tími til kosninga, en ég er strax orðin leið á skoðanakönnununum og fæ hnút í magann við tilhugsunina um daglegar kannanir vikuna fyrir kosningar.  Á hverjum degi koma forsvarsmenn flokkanna til með að þurfa að svara fyrir hverja skoðanakönnun og koma með misgáfuleg svör, svona eins og meðbyr frjálslyndra í síðustu könnun - 0,7% fylgisaukning, auðvitað þvílík og önnur eins aukning meðbyr og lykillinn að því að fella ríkisstjórnina

Reyndar er það áhugavert í þessari frétt að ekki er minnst á þá staðreynd að sjálfsstæðisflokkurinn dalar um tæp 4% frá síðustu könnun, framsóknarflokkurinn eykur fylgi sitt um rúmt 1%, auk þess sem vinstri grænir bættu við sig tæpum 4%.  Það sem er þó líklega allra áhugaverðast í þessari könnun, sem og öðrum sem hafa verið gerðar að undanförnu, er hversu lélegt svarhlutfallið er enn, nú þegar styttist óðum í kosningar.  Í þessari síðustu Gallup könnun er svarhlutfall 61,7% og ljóst að lausafylgið er enn stórt og því gæti farið svo að aðeins eitt gott kosningamál þarf til að gerbreyta stöðu mála.

P.S. ef þið eruð innundir hjá e-m hjá Háskólanum í Aberdeen þá endilega sendið inn gott orð fyrir mig - þið hin, krossið fingur með mér Halo


Breytingar framundan?

Ég elska bækur.  Ég hreinlega elska að lesa texta sem fær mig til að brosa og gleðjast, fær hjartað til að slá hraðar og nei ég er ekki að tala um ástarsögur - ég er að tala um fræðitexta.  Hafið þið upplifað þetta?

Bæði vegna vinnu og háskólaumsóknaferlisins hef ég að undanförnu verið að lesa óhemjumagn af rannsóknum og ýmsum öðrum upplýsingum.  Nú þegar vinnudagurinn er kominn að lokum sit ég yfir einni áhugaverðustu skýrslu sem ég hef lesið í nokkurn tíma og ég er algerlega dottin í hana - hef gengið svo langt að ég er að fletta upp þeim heimildum sem vísað er í - svo áhugaverð er hún.  Hún er vel skrifuð, áleitin og já, hálf ólýsanleg.  Að þessu leiti finnst mér texti oft munúðarfyllri en mynd eða hljóð, hvetur mann til að nota ímyndunaraflið á allt annan hátt.

Annars hef ég mikið verið að velta fyrir mér breytingum.  Fæ vonandi fljótlega að vita hvort breytingar séu framundan hjá mér - jafnvel í næstu viku.  Er núna loksins búin að skila inn öllum gögnum til Aberdeen og býð vægast sagt spennt eftir svari sem mér skilst að eigi ekki að taka svo langan tíma að fá.  Leyfi ykkur að sjálfsögðu að fylgjast með. 

Er orðin of sein á fund - skýrslulesturinn truflaði mig - meira síðar


Gleðilega páska

drekktubeturPáskarnir hafa verið nokk góðir og einkenndust af skemmtunum og löngum göngutúrum.  Aldrei fór ég suður stóð auðvitað fyrir sínu og aðrar skemmtanir og skemmtilegheit sömuleiðis.  Við fórum á þetta líka skemmtilega vínsmökkunarnámskeið á miðvikudaginn og snittuðumst saman síðar um kvöldið.  Á fimmtudagskvöldið fór ég á Langa Manga á Drekktu betur þar sem Muggi hafnarstjóri var að spyrja með þemað Aldrei fór ég suður, auðvitað. 

afesfyrrakvold1Á föstudeginum var auðvitað farið á Aldrei fór ég suður þar sem rokkað var af fullum krafti.  Fór reyndar ekki á ball það kvöld, en var þess mun meira hress í gærkvöldi.  Það voru allir reyndar í miklu stuði í gærkvöldi.  Endaði í partýum og rölti að lokum heim á leið seint og síðar meir.  afesfyrrakvold3

 Ég fór í góða og langa göngutúra með Þórunni Önnu á fimmtudag og með Maríu Ögn, Nótt og Uglu bæði föstudag og laugardag - bjargaði það tvímælalaust heilsunni þessa páskana Wink 

Setti inn fullt af myndum frá páskavikunni inn á myndasíðuna, endilega tékkið betur á myndum þar.


Neikvæð kosningabarátta framundan?

Eitt af því sem mér hefur þótt skemmtilegt við að vera komin á "Moggabloggið" er fítusinn "bloggvinir".  Sérstaklega þótti mér ánægjulegt þegar Samfylkingin í Norðvestur kjördæmi bað mig um að vera bloggvinur sinn.  Verð einfaldlega að gefa þeim plús fyrir það að eiga bloggvini úr öðrum flokkum.  Ég var annars að ræða það við vini mína í dag að mig langar helst að allir flokkarnir sem bjóða sig fram í NV-kjördæmi taki upp fordæmi Samfylkingarinnar og allir verði bloggvinir mínir og eins innbyrðis á milli flokka. 

Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta er sú að ég hef áhyggjur af því hvernig þessi kosningabarátta er að þróast.  Þó að ég hafi hingað til starfað innan Framsóknarflokksins þá kynni ég mér auðvitað stefnur hinna flokkanna og tek að lokum ákvörðun út frá þeim og trausti á frambjóðendum á kjördag. 

Í mínum huga á góð kosningabarátta að snúast um málefnin, eða þ.e. hún á að snúast um markmið flokkanna, mismunandi leiðir þeirra að markmiðunum og málefnalegar rökræður þar um (fólk í dag er alltof viðkvæmt fyrir góðum rökræðum). 

 Slæm kosningabarátta, eins og þessi virðist vera að þróast í, er þegar baráttan snýst ekki um að kynna góð markmið og leggja fram raunhæf og góð stefnumál heldur fyrst og fremst um að gera lítið úr andstæðingunum og stefnumálum þeirra; m.ö.o. neikvæð kosningabarátta (t.d. almennt skítkast og neikvæðar auglýsingar).  Ítreka þó aftur að auðvitað geta menn verið ósammála um ýmislegt og má þá eðlilega rökræða um slíkt - rökræða, ekki gera lítið úr.  Þá finnst mér mikilvægt að ekki sé einn samfélagshópur tekinn fyrir í umræðunni á neikvæðan hátt, líkt og hefur því miður verið gert í fortíð og nútíð t.d. umræðan gagnvart innflytjendum á síðustu vikum.

Veit ekki með ykkur ... en ég vil að hver flokkur sannfæri mig um ágæti eigin stefnu með því að leggja fram raunhæf og vel útfærð stefnumál í stað þess að eyða allri sinni orku í að reyna að upphefja sjálfa sig á kostnað annarra.


*geisp*

Sögnin að gúggla hefur valdið þó nokkrum deilum í íslensku samfélagi - einkum í tengslum við hina googlelogoíslensku tungu.  Það er þó löngu orðið þekkt að fólk á það til að gúggla hinn/hina og þennan/þessa eða það sem viðkomandi hefur áhuga á.  Í bíómyndunum er það aðallega e-r sem viðkomandi hefur rómantískan áhuga á.  Já, Google getur verið uppspretta mikillar visku.

Ég skellti mér á Google áðan og sló inn nafn, nafn á manneskju sem mér þykir mjög vænt um - mitt eigið nafn InLove  Þegar ég leitaði "Albertína Friðbjörg Elíasdóttir" fann google u.þ.b. 735 færslur, "Albertína Elíasdóttir" og það fundust u.þ.b. 358 færslur og að lokum "Albertína Friðbjörg" og þá fundust u.þ.b. 1180 færslur.  Ég hefði líklega fundið enn fleiri færslur ef ég hefði einfaldlega sett inn nafnið Albertína, t.d. færslur um hana "nöfnu mína" músina Albertína Ballerínu.  Áhugavert ekki satt?  Færslur þær sem finnast eru mjög mis innihaldsríkar.  Allt frá tilvísunum til bloggsíðna og upplýsinga um gamla ræðu sem ég flutti á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins fyrir mörgum, mörgum árum og mér fannst reyndar mjög áhugavert að lesa að nýju.  Annars áttu skilaboðin með þessari færslu að vera þau að ég held að það sé öllum hollt að gúggla sjálfan sig eindrum og eins - þó ekki sé nema bara til gamans.

Fyrir þá sem ekki vita það þá er Veraldarvefurinn kerfi skjala sem öll tengjast innbyrðis (jájá, einföldun ég veit það).  Vefurinn var skapaður í kringum 1990 af Bretanum Tim Berners-Lee og Belganum Robert Cailliau á meðan þeir unnu fyrir CERN í Genf, Sviss - s.s. evrópsk uppfinning ekki bandarísk. 

Er annars orðin þreytt eftir langan dag þannig að frekari viðbætur við Veraldarvefinn verða að bíða betri tíma.  Verð samt að tjá mig um eitt að lokum - sáuð þið auglýsingu frjálslyndra í Fréttablaðinu í gær? Er ég ein um að hafa fengið smá hroll?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband