Sunnudagur, 1. apríl 2007
Afslöppun og íhugun
Helgin hefur verið yndisleg - ein af þessum helgum þar sem ég gerði akkúrat ekki neitt - en samt svo margt Tók því rólega - enda nauðsynlegt að safna kröftum fyrir páskana. Tók því reyndar svo rólega að ég man varla hvað ég gerði um helgina
Rámar þó e-ð í sjónvarpsgláp, tiltekt, vangaveltur um lífið og tilveruna, píanótíma og ísrúnt yfir í Önundarfjörðinn þar sem við litla systir lentum í smá sandstormi sem fyllti bílinn af sandi (löng saga).
Er annars enn að reyna að raða saman skíðavikudagskránni minni - en það er einfaldlega of mikið um að vera. Held að málið sé að mæta á setningu Skíðaviku á miðvikudaginn og snúa sér svo við og horfa á Sprettgöngu Núps - svona rétt áður en haldið verður á vínsmökkunarnámskeið á Skrifstofuhótelinu. Þaðan verður dagskrá kvöldsins haldið áfram - tónleikar, miðnæturmatur og jafnvel e-ð fleira er allt inn í myndinni.
Fimmtudagurinn er enn óráðinn en nokkrir atburðir eru inn í myndinni s.s. skíðaskotfimi upp á dal og Drekktu betur á Langa Manga. Föstudagur og laugardagur eru auðveldari viðureignar, en þá er Aldrei fór ég suður að sjálfsögðu málið og jafnvel ball eftir að hátíðinni líkur - sjáum til hvernig þetta fer, á örugglega eftir að skipta um skoðun reglulega eins og venjulega Ætla fyrst og fremst að njóta þess að vera í fríi og slaka á
Btw setti inn lag til minningar um páska fortíðarinnar - "Mér finnst rigningin góð" með hljómsveitinni SSSól - hver man ekki eftir páskaböllunum í Hnífsdal?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 1. apríl 2007
Sívælandi aumingjar?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 1. apríl 2007
Lífið og tilveran
Ég hef alla tíð verið mikil áhugamanneskja um "frægar" tilvitnanir. Það er ótrúlegt hvað fólk hefur í gegnum tíðina verið alveg merkilega hnyttið og orðheppið. Ekki nóg með það, heldur hefur það haft oft rétt fyrir sér, oft í kaldhæðni sinni.
Ég hef því í gegnum tíðina átt það til að sökkva mér ofan í hinar og þessar bækur um tilvitnanir og haft gaman af. Með tilkomu Internetsins hefur það orðið enn einfaldara að leita að skemmtilegum tilvitnunum og er gott dæmi um það heimasíða sem góður vinur benti mér á í vikunni - www.tilvitnun.is - Á síðunni má finna þekktar og minna þekktar tilvitnanir, hafðar eftir bæði íslenskum og erlendum einstaklingum. Nokkur dæmi má lesa hér fyrir neðan:
Fyrirgefðu ávallt óvinum þínum; ekkert pirrar þá jafn mikið. - Oscar Wilde
Öfgamaður er sá sem getur ekki skipt um skoðun og vill ekki skipta um umræðuefni - Winston Churchill
Það er ekki hægt að segja að bók sé siðleg eða ósiðleg. Bækur eru vel eða illa skrifaðar. Það er allt og sumt. -Oscar Wilde
Vinur þinn er sá sem veit allt um þig og líkar samt sem áður vel við þig. - Elbert Hubbard
Ég hef einmitt verið að velta fyrir mér vináttunni síðustu daga - hef reyndar verið að velta ýmsum hlutum fyrir mér þessa dagana. Enn er ekkert að frétta af skólamálunum, staðreynd sem pirrar mig alveg óendanlega mikið - alltaf erfitt að þurfa að láta aðra taka ákvarðanir fyrir mann, þó oft sé það einmitt það sem maður vill
Hvað um það - akkúrat núna er ég of þungt hugsi um vináttuna, menntun, lýðræðið, pólitíkina, menntahroka og öfgamenn að það er ekki innihaldsríkara blogg í boði þessa stundina - meira á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 30. mars 2007
Ný könnun
Örstutt til að benda ykkur á að það er komin ný könnun - á að skella sér vestur um páskana í góða frábæra veðrið með frábæra skemmtilega fólkinu eða ekki?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 30. mars 2007
Sumarið er komið ...?
Ég hef nokkrum sinnum sest niður fyrir framan tölvuna og ætlað að skrifa nokkrar línur um Ísafjörð. Nei, það lýsir þessu ekki nógu vel.
Ég hef nokkrum sinnum sest niður fyrir framan tölvuna og til að reyna að lýsa því hversu einstakt það er að búa á Ísafirði.
En einhvernveginn þá tekst mér aldrei að koma orðum að því. Næ ekki að fanga stemmninguna sem býr í bænum mínum í orð.
Annars eru páskarnir að koma Að því er mér skilst þá er allt gistirými á Ísafirði orðið troðfullt og rúmlega það. Eins var ég að heyra að það verði alveg ótrúlega mikið flogið vestur nú um páskana. Datt í hug að skoða heimasíðu Flugfélags Íslands til að staðfesta það (svona af því að það er svo lítið að gera hjá mér (eða þannig)). Það verða þrjár vélar til Ísafjarðar á sunnudag og mánudag. Þrjár vélar á miðvikudag og þar af þegar orðið uppselt í síðustu vél þess dags. Fjórar vélar verða á fimmtudeginum (uppselt í tvær þeirra) og þrjár vélar á föstudeginum (uppselt í tvær). Svo verða sjö vélar frá Ísafirði á mánudeginum (annar í páskum) og er orðið uppselt í allar nema eina - Eins gott að veðrið haldist gott
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 29. mars 2007
Af ráðstefnum og öðru fjöri
Það varð töluvert minna um skrif í þessari viku en áætlað hafði verið. Kom það til af þeirri einföldu ástæðu að ég var á mjög áhugaverðri ráðstefnu í vikunni. Ráðstefna þessi, eins og fram hefur komið áður hér, fjallaði um innflytjendamál og var alveg ótrúlegt hvernig ólík lönd eru að glíma við nákvæmlega sömu vandamálin. Það var margt áhugavert sem kom fram í máli fyrirlesara, en mér skilst að það verði hægt að nálgast fyrirlestrana á heimasíðu Háskólasetursins fljótlega. En þar er nú þegar hægt að nálgast heilmikið af áhugaverðum upplýsingum um þennan málaflokk.
Fyrirkomulag ráðstefnunnar var mjög skemmtilegt. Fyrirlesarar voru ólíkir frá Kanada, Íslandi, Noregi, Þýskalandi og Bretlandi og með mismunandi áherslusvið. Eftir hvern fyrirlesara stóðu tveir ráðstefnugestir upp og komu með "comment" á fyrirlestur viðkomandi - ekki athugasemdir heldur sögðu frá því hvernig fyrirlesturinn tengdist þeirra reynslu og hvort og hvernig þeir gátu tengt fyrirlesturinn við þeirra eigin aðstæður. Eftir hverja þrjá fyrirlesara voru svo pallborðsumræður þar sem ráðstefnugestir fengu tækifæri til að koma með athugasemdir og spurningar.
Eins og flestir sem hafa einhverntíma setið ráðstefnur vita þá er það sem fram fer á kvöldin jafnvel enn mikilvægara en það sem fer fram í birtu dagsins. Það er þar sem að fólk nær að kynnast almennilega og tengjast jafnvel vináttuböndum til framtíðar. Ísfirðingar eru auðvitað þekktir fyrir það að bjóða upp á góða skemmtun (þeir sem hafa heimsótt Ísafjörð einhverntíma almennilega þekkja það, ekki satt?) og var þessi ráðstefna engin undantekning á því.
Á mánudagskvöldið fóru ráðstefnugestir (eða a.m.k. meirihluti þeirra) út að borða á Hótel Ísafirði ásamt fyrirlesurum og eftir matinn var svokallað Samfélags-Stef þar sem voru tónlistaratriði og dans, auk þess sem erlendu fyrirlesararnir voru með stuttar en skemmtilegar kynningar á löndum sínum sem einkenndust af myndum og mat.
En það voru ekki eingöngu erlendir fyrirlesarar sem kynntu lönd sín.
Fyrir skemmtilega tilviljun þá voru staddir á hótelinu tveir samískir fréttamenn sem voru á Vestfjörðum til að taka upp og kynna sér málefni fiskútgerðar hér og bera saman við stöðuna í norður Noregi - einkum hvað varðar (ef ég skyldi norskuna rétt) útgerðartækni, þ.e. stærð báta og hvar fiskurinn er unninn o.fl. Þeir voru ekki lítið kátir og skemmtilegir, eins og Norðmönnum er einum lagið - og vildi svo skemmtilega til að annar þeirra var með samíska þjóðbúninginn með sér og söng fyrir okkur gömul þjóðlög.
Þetta kvöld held ég að sé óhætt að segja að fólk hafi almennt skemmt sér mjög vel, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. En kvöldið endaði á Langa Manga, þar sem stuðið hélt áfram fram á nótt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 25. mars 2007
Kúrekalag dagsins - Hattaball
Já, fór á stór skemmtilegt ball í gær allir með rosa flotta hatta og þvílíkt skemmtilegt að dansa við tónlist Margrétar og Baldurs
Hef e-ð voðalega lítið að segja akkúrat núna, nema að deila með ykkur Kúrekalagi dagsins. Kúreki dagsins er maður nokkur sem allar stelpur þekkja ... hann heitir John Corbett en hann er líklega betur þekktur sem Aiden úr Sex and the City. Hann hefur s.s. snúið sér að kúrekasöngli.
Lag dagsins er lagið hans Back door to my heart - tékkið á því í spilaranum.
Minni á ráðstefnu Háskólaseturs og Fjölmenningarseturs á morgun, þriðjudag og miðvikudag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 25. mars 2007
Kúrekalag gærdagsins

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 24. mars 2007
Kúrekalag dagsins
Jæja, þetta gengur betur en ég átti von á ... Spilaði Catan í gær, hef líklega sjaldan verið jafn léleg og í gær Verð að taka mig á og slá í gegn í næsta spili
Val á Kúrekalagi dagsins verður æ erfiðara. Nú er laugardagur og Hattaball í kvöld, en ég verð að viðurkenna að lög dagsins eru frekar afslöppuð og kannski pinku döpur, en áhugaverð þrátt fyrir það
Fyrri kúreki dagsins er enginn annar en goðsögnin Willie Nelson. Fyrra lagið er coverlag, útgáfa hans af laginu Georgia on my mind, lag sem líklega er þekktast í flutningi Ray Charles. Seinna lagið er hins vegar lagið Cowboys are secretly, frequently (fond of each other) sem er frægt fyrir að fjalla um samkynhneigð kúreka. Verð að viðurkenna að það hefur komið mér skemmtilega á óvart hvað margir sveitatónlistarmenn virðast vera óhræddir við ádeilur
Seinni kúreki dagsins er hljómsveitin Lonestar. Lagið er ein vinsælasta ballaða þeirra, lagið Amazed. Alveg ótrúlega rómantískt lag, ekta til að vanga við á balli - síðasta lag fyrir lokun
Er búin að setja lögin inn á spilarann, endilega tékkið á þeim - ég er hins vegar farin að gera mig tilbúna fyrir hattaballið, nokkuð sem ég ætti að vera löngu búin að gera - meira um ballið síðar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 23. mars 2007
Á Ísafirði af öllum stöðum ...
Já, það er ekkert skrýtið að fólk fari héðan og að fólk á höfuðborgarsvæðinu komi ekki vestur. Ef til vill mætti segja að þetta sé vandamál okkar í hnotskurn - viðhorfin sem við berjumst við - fordómar e.t.v.?
Þeir sem hlustuðu á morgunútvarpið í gærmorgun, rétt fyrir klukkan níu heyrðu þar mjög jákvæða og skemmtilega umræðu um Aldrei fór ég suður hátíðina sem verður haldin hér á Ísafirði í Páska-/Skíðavikunni. Umræðan missti þó flugið all verulega þegar annar stjórnenda þáttarins sagði: og á Ísafirði af öllum stöðum - Gestur Einar (hinn stjórnandi þáttarins) brást vel við og spurði hvað Hrafnhildur ætti eiginlega við með þessum ummælum sínum og þá fór hún að tala um hvað það er langt að fara vestur. Fólki finnist það flókið mál og að allt eigi að fara fram í Reykjavík. Ég held að Hrafnhildur hafi alls ekki verið að meina þessi ummæli sín eins og þau hljómuðu, heldur hafi verið um einskonar "Freudian slip" að ræða. Rétt er að halda til haga að Hrafnhildur baðst afsökunar á ummælum sínum í morgun, en það var rétt eftir sjö fréttir og spurning hversu margir hafi verið að hlusta á þeim tíma.
Þessi setning og á Ísafirði af öllum stöðum finnst mér þó vera lýsandi fyrir þau viðhorf sem margir virðast hafa til landsbyggðarinnar og þá Vestfjarða. Alltof oft hef ég verið spurð um það, eftir að ég flutti vestur, hvort mér leiðist ekki örugglega að búa á svona litlum stað og komast ekki í "menninguna" sem finna má í Reykjavík. Staðreyndin er hinsvegar sú að ég geri enn meira "menningarlegt" eftir að ég flutti vestur heldur en á þeim tíma sem ég bjó í Reykjavík. Það líður ekki sú vika að ég geri ekki eitthvað skemmtilegt og það er helst að ég kvarti undan því að það sé of mikið um að vera, enginn tími til að hanga heima og horfa á sjónvarpið eða lesa góða bók.
Ef við tökum næstu vikuna sem dæmi. Í kvöld stefnir allt í að við hittumst nokkur að spila og aldrei að vita nema við skellum okkur seinna um kvöldið á Langa Manga þar sem lifandi tónlist er nánast undantekningarlaust á helgum. Á morgun er einmitt of mikið um að vera. Ég geri ráð fyrir að fara í fyrramálið í Tónlistarskólann að æfa mig á píanóið (stigspróf í vor). Svo vandast málið. Hamrahlíðarkórinn er með tónleika í Hömrum kl. 17.00, en ég er að fara á Hattaball kvennakórsins Vestfirsku Valkyrjurnar annað kvöld og til að vera tilbúin á ballið kl. 20.00 þá gæti orðið erfitt að fara á tónleikana. Þau eru reyndar líka að syngja í kvöld út í Bolungarvík og á Flateyri og Þingeyri á sunnudaginn þannig að það er aldrei að vita nema maður skelli sér í gegnum göngin á sunnudaginn í staðinn.
Á mánudaginn hefst svo þriggja daga alþjóðleg ráðstefna um innflytjendur í dreifbýli og verður heilmikið um að vera í kringum hana - hvet alla sem geta til að mæta, hlusta og taka þátt í umræðunum! Já, þessi ráðstefna dekkar s.s. mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Auk þess er Umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar með íbúafundi vegna aðalskipulagsvinnunar þessa sömu daga. Á fimmtudaginn er síðasti íbúafundurinn, auk þess sem Drekktu betur er á Langa Manga. Það á eftir að koma í ljós hvort ég skelli mér í spurningasvörun eða hvort ég njóti þess að vera heima til tilbreytingar og horfi á vin minn Hugh Laurie, sem ég ætlaði engan vegin að muna nafnið á í gær , í þættinum House
... og þá er kominn föstudagur aftur. Haldið þið að mér eigi eftir að leiðast? Svona er þetta alltaf, meir en nóg að gera - og þarna var ég eingöngu að telja upp einstaka atburði, þ.e. sleppti að minnast á vinnuna, tónlistarskólann og námið, föstu punktana í lífinu og tilverunni. Eftir næstu viku hefst svo Skíðavikan ... púff, ætla ekki að ræða valkvíðann sem er framundan
Í upphafi þessa pistils, sem er orðinn alltof langur, velti ég upp þeirri spurningu hvort hugsanlegt sé að viðhorf fólks gagnvart landsbyggðinni - Vestfjörðum - byggist á fordómum. Hvað haldið þið?
Besta leiðin til að takast á við fordóma er að viðurkenna þá og kynna sér málin betur. Þess vegna skora ég á þá sem eru neikvæðir gagnvart Vestfjörðum að fara leiðina sem ég er að nota gagnvart sveitatónlistinni og skella sér einfaldlega vestur - Skíðavikan og Aldrei fór ég suður framundan, sjaldan betra tækifæri til að kynnast hinum raunverulegu Vestfjörðum
Ég lofa ykkur að það er minna mál en þið haldið!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)