Færsluflokkur: Bloggar

Borg óttans

Er í Reykjavík - kom með hádegisvélinni og fer aftur með seinni vélinni á morgun.  Veðrið í dag hefur verið þannig að það hefur varla verið annað hægt en að njóta lífsins í blíðunni.  Við María Ögn fórum og sleiktum sólina á Austurvelli - nokkuð notalegt. 

En já, heim aftur á morgun - spurning um að kíkja út á næturlífið?

Meira síðar.


Hvað skal rannsaka?

Ég er í óvenjulegum vandræðum.  Tja, kannski ekki "óvenjulegum" en ég er að reyna að venja mig af að nota blótsyrði smátt og smátt og þetta var fyrsta orðið sem mér datt í hug Wink 

Aftur að vandræðunum.  Ég er búin að vera að hugsa og hugsa og velta fyrir mér og velta fyrir mér síðustu daga og vikur hvað mig langar að rannsaka og skrifa um í vetur.  Fyrir þá lesendur sem ekki vita það þá er ég að fara í byggðarannsóknir í Aberdeen í vetur og þar sem ég er að fara í rannsóknarnám þá þarf ég að finna mér e-ð sniðugt rannsóknarefni sem fyrst.  Vandamálið er bara að byggðamálin eru svo gríðarlega víðfemt viðfangsefni að ég á í mestu vandræðum með að velja einhverja eina spurningu til að svara.  Ég sendi prófessornum nokkrar hugmyndir í gær, en er samt enn ekki orðin algerlega sátt og ákvað því að leita til ykkar lesendur góðir og athuga hvort þið hafið ekki e-r góðar hugmyndir um hvað gæti verið þarft að rannsaka í tengslum við byggðamál? Smile 

Þannig að ef ykkur dettur e-ð sniðugt í hug, endilega setjið það í komment hér við færsluna eða sendið mér t-póst Happy


Mynd dagsins

Eftir ábendingu frá mömmu þá sendi ég myndina sem fylgdi síðustu færslu í ljósmyndakeppni mbl.is og Hans Petersen í gær.  Hald'iði að hún hafi ekki verið valin mynd dagsins LoL


Breiðadalsheiðin í góða veðrinu


Hesteyri og þursabit

Eftir mikinn valkvíða á milli þess að fara á tónleika með Erlingi Blöndal Bengtsyni eða á Konukaffi á Hótelinu þá einfaldaðist valið mikið þegar þriðji valmöguleikinn bættist við seinni partinn í gær, skreppferð á Hesteyri, hver stenst slíkt boð? Smile  Ég ákvað s.s. að slaufa bæði tónleikum og kaffi og skellti mér með pabba og fleirum norður á Hesteyri, í þessu líka fína veðri.

 Hesteyri-001

Það er alltaf jafn yndislegt að koma norður, ég fyllist alltaf krafti og lífsgleði, eða kannski heldur skilningi.  Við stoppuðum stutt, en tókum með okkur "puttaferðalanga" á leiðinni heim, göngufólk sem verður að segjast vera heppið að hafa rekist á okkur þar sem þau höfðu ekki gengið frá heimferð áður en þau lögðu af stað, eða þ.e. fengu rangar upplýsingar varðandi fjölda ferða o.s.frv. - hvað um það, þau voru hress og fengu far yfir á Ísafjörð.  Þar sem við Albert frændi vorum ekki í að draga rör eða annað þvíumlíkt heldur einfaldlega að slæpast um þá skemmtum við okkur konunglega með myndavélina hans pabba.  Þið getið skoðað myndir hér.  Ég þurfti að skipta um myndageymslu þar sem að fotki var orðið fullt.  Ég hins vegar komst að því að Facebook-ið mitt býður upp á ótakmarkaða myndavistun þannig að það er hið besta mál Smile

Hvað um það, frábær ferð á Hesteyri eins og sjá má á myndunum.  Vinnudagurinn í dag var hins vegar langur og strangur, enda er mér langt frá því að leiðast í vinnunni ... Eftir vinnu skrapp ég í mat til mömmu og pabba og fór svo heim og ætlaði að vera rosa dugleg og slá garðinn fyrir ömmu og afa ... Ekki fór þó betur en svo að þegar ég var rúmlega hálfnuð með garðinn þá festist ég og ég meina festist!! í bakinu.  Í fyrstu áleit ég þetta vera einfaldan aumingjaskap og hélt áfram að slá, en þegar það var orðið vont að stíga í fæturna Pinch þá hringdi ég í Jóhönnu frænku, baksérfræðinginn í fjölskyldunni, og spurði ráða.  Þau voru einföld, fara í heita sturtu eða heitt bað, verkjatöflur og bólgueyðandi og leggjast upp í rúm.  Ég þorði ekki öðru en að hlýða og ligg núna upp í rúmi með hitapoka undir bakinnu með krosslagða fingur að ég verði orðin betri á morgun ... finnst annars verst að hafa ekki getað klárað að slá og rakað ... sjáum til hvort ég hrökkvi ekki í lag á morgun Halo

 


Til hamingju með daginn stelpur!

19jun_banner_180px


Bjarkalundur er málið í sumar

Já, fór í alveg stórfína ferð með Önnu Guðrúnu formanni Fjórðungssambandsins á fimmtudag og föstudag.  Við brunuðum yfir á Patró á fimmtudagsmorgunin, fórum á fund þar og héldum svo á Reykhóla á annan fund.  Eftir allan þennan akstur vorum við ekkert lítið svangar og fórum þess vegna og fengum okkur að borða í Bjarkalundi og það var einu orði sagt ... tja, ég get varla lýst því í einu orði, en maturinn var snilldarlega góður.  Ég fékk mér lasagna og ítalskan súkkulaðirétt - vá vá vá!!  Þjónustan var líka frábær, virkilega góð og já, held að Bjarkalundur sé tvímælalaust skyldustopp í sumar LoL  Mæli alveg sérstaklega með ítalska súkkulaðiréttinum!

Á leiðinni á Tálknafjörð var þetta líka flotta veður í Breiðafirðinum - tók slatta af myndum.  Við gistum svo í góðu yfirlæti á gistiheimilinu Bjarmalandi á Tálknafirði - flottur staður, góð aðstaða og flott þjónusta.  Þetta var virkilega góð ferð, þó alltaf sé best að sofa í eigin rúmi og gott að koma heim Smile

Annars er gaman að segja frá því að lífið gengur sinn vanagang og ósköp lítið að frétta.  Stefni á að skreppa suður helgina 29.júní-1.júlí að gera lítið sem ekki neitt.  Er að fara á fund á laugardagsmorgninum, en er annars á lausu þannig að endilega bjallið ef þið verðið í borginni og langar að hittast Wink

júní-050

Sjáið þið Örninn? 


Flott veður, flott fólk, flottur staður

Helgin var hreinlega alveg hreint jafnvel enn betri en ég átti von á. 

Á föstudaginn mætti liðið í grillveislu - sjá myndir:

maí-júní-025

maí-júní-019   maí-júní-027               

Já, Ísafjörður er aðalstaðurinn.  Ég þurfti hins vegar að vakna snemma á laugardagsmorguninn, mætti á málþing um Aðalskipulag Ísfjarðarbæjar á Þingeyri.  Þar var ansi fámennt, verður einfaldlega að viðurkennast, en fyrirlestrarnir voru góðir og margt sem kom á óvart.

Á laugardagskvöldinu fór ég í súpersmáréttateiti til Tinnu og Gylfa áður en við héldum öll á frábæra stórsveitartónleika.  Fílingurinn í nýja Edinborgarhúsinu var svakalegur og lífið barasta nokkuð gott.  Pælingin hafði verið að fara líka á ball, en þegar farið var að nálgast balltíma eftir tónleikanna þá ákvað ég að nóg væri komið og fór heim - nokkuð sem ég var virkilega fegin með þegar ég vaknaði morguninn eftir.  Ég þurfti að vakna ágætlega snemma til að keyra til Hólmavíkur eða þ.e. Sauðfjárseturs á Ströndum vegna undirritunar menningarsamnings á milli sveitarfélaga á Vestfjörðum.  Eftir alveg stórskemmtilega undirritun og alveg hreint frábært kökuboð (ef þið eigið leið hjá í sumar þá mæli ég alveg tvímælalaust með að stoppa í kaffi og kökur).  Þar sem Aðalsteinn þurfti að erinda e-ð á Hólmavík ákvað ég að nýta tímann vel og skellti mér að skoða Galdrasýninguna sem var virkilega góð og mjög áhugaverð/fróðleg.  Þetta er tvímælalaust skyldustopp fyrir þá sem ekki hafa kíkt - og reyndar hina líka Wizard 

Svo var það bara vinna í gær, auk þess sem ég var að kenna í Háskóla unga fólksins í gær og í dag, rosa gaman - frábærir krakkar, björt framtíð Smile 

Fór svo að labba í góða veðrinu áðan, hitti Brynju Huld frænku á förnum vegi og við tókum góðan göngutúr saman... hér má sjá tvær myndir úr göngutúrnum, fleiri myndir komnar í myndirnar mínar Wink  Í fyrramálið er það svo umhverfisnefndarfundur og auðvitað vinnan, vonandi gott veður og góður göngutúr og dagurinn er fullkomnaður Cool 

   júní-008                                                   júní-003


Jibbí, helgin er að koma

Kominn föstudagur enn og aftur.  Plön helgarinnar breytast stöðugt.  Í kvöld verður smá grill og rólegheit.  

Á morgun er málþing vegna Aðalskipulags Ísafjarðarbæjar um Auðlindir og lífsgæði sunnan Djúps, haldið á Þingeyri frá kl. 10 til 15 - endilega mætið ef þið hafið ekkert að gera Wink  Um kvöldið er svo planið að mæta á stórtónleika og dansiball í Edinborgarhúsinu.  Það verður eflaust meira fjör en á málþingið, eða reyndar ekki meira heldur öðruvísi fjör Cool 

Á sunnudaginn verður svo brunað á Strandir til að skrifa undir samstarfssamning sveitarfélaga um menningarmál.  Heim aftur seinna um daginn og einhverntíma á þessum tíma, frá deginum í dag fram á mánudagsmorgun þarf ég að búa til glærur í afbrotafræði Whistling fyrir Háskóla Unga fólksins.  Hlakka mikið til kennslunnar enda verður þetta án efa virkilega skemmtilegt, pinku stress með glærurnar ... en þetta reddast Halo

Hvað um það, akkúrat núna er ég að velta fyrir mér hvað ég á að grilla í kvöld.  Hvernig hljóma ananas-kjúklinga-vasar? Eða e-ð af þessu?  En ég er a.m.k. ákveðin í að gera S'mores

Svo eru það auðvitað drykkirnir - hvernig hljómar Rommpúns frá Bahamas?  Eða Öskubuska? Já, eða er Cosmo málið??


úbsí-dúbsí

Smá klaufaskapur í gangi - var að fikta í síðunni og ruglaði e-m færslum aðeins ... gaman af því Smile 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband