Færsluflokkur: Bloggar
Þriðjudagur, 21. apríl 2009
20. apríl 2009
Vorið er komið vestur og veðrið er gott
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 12. apríl 2009
Gleðilega páska!
Vona að þið hafið haft það jafn ágætt og ég um páskana Gleðilega páska!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 5. apríl 2009
Vor í Önundarfirði
Við litla systir höfðum enga eirð í okkur að sitja inni í gær, frekar en aðrir geri ég ráð fyrir - enda var veðrið alveg hreint stórkostlegt
Myndavélin var auðvitað með í för ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 2. apríl 2009
Ísafjarðardjúp að morgni
Tók þessa á leið í vinnu í morgun :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 31. mars 2009
Myndablogg
Já kæru lesendur, þar sem það er óhemju mikið að gera hjá mér næstu vikurnar í ritgerðarskrifum, prófum og fleira
skemmtilegu, þá er ég að spekúlera í að geyma bloggið næstu vikurnar. En í staðinn fyrir að skrifa ætla ég reglulega að henda inn myndum ... verður bara minna um skrif, bara svona rétt meðan mesta álagið er
Meira síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. mars 2009
Sól sól skín á mig
Það snjóar reyndar núna, en veðrið í gær var alveg hreint æðisgengið Við systurnar drifum okkur á skíði eftir vinnu, enda veðurspáin fyrir vikuna þannig að það leit út fyrir að þetta yrði síðasta tækifærið í vikunni að fara á skíði þannig að virkilega gaman væri að
Ég tók að sjálfsögðu nokkrar myndir ...
Þessa hér fyrir neðan tók ég svo í vinnunni í gær ...
Þessa hér fyrir neðan tók ég á leiðinni í vinnuna á fimmtudaginn ...
Annars er það bara lærdómurinn sem á hug minn allan þessa dagana En ef þið viljið sjá fleiri myndir, þá eru þær venju samkvæmt hér.
Meira síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 4. mars 2009
Langt á milli blogga, ólukka og vetrarmyndir
Það hefur verið langt á milli blogga núna, en venju samkvæmt hef ég ágætis afsökun, en ég ákvað að skella mér í að taka einn áfanga í haf- og strandsvæðanámi Háskólaseturs Vestfjarða, áfanga sem heitir Conflict resolution in resource management sem myndi útleggjast á einfaldan hátt sem átakastjórnun í auðlindastjórnun. Áfangann fæ ég síðan metinn inn í meistaranám mitt við HÍ. Þetta reyndist meir en lítið skemmtilegt að taka þennan áfanga, reyndar kalt í stofunni en það er annað mál Þéssir áfangar eru settir upp á mjög skemmtilegan hátt, kennsla og verkefnaskil á þremur vikum og er þriðju vikunni að ljúka næstkomandi föstudag, en kennslu lauk á síðasta föstudag
Reyndar verð ég nú að deila því með ykkur hvað ég tók hressilegt forskot á næsta föstudaginn 13. síðastliðinn föstudag. Ég veiktist; þ.e. fékk flensu, tölvan mín veiktist líka ansi hressilega og rennilásinn á úlpunni líka, eða nánar útskýrt móðurborðið í tölvunni minni brann yfir og rennilásinn á úlpunni hrökk í sundur Á mánudaginn skrökklaðist ég ásamt flensunni í Netheima og Hafnarbúðina og voru tölvan og úlpan send suður í viðgerð Verð að viðurkenna að verst fannst mér með tölvuna, en ég á að skila lokaverkefninu í átakastjórnunaráfanganum á föstudaginn Það lítur þó ágætlega út með aðstoð litlu systur og tölvunnar hennar, reddast þetta ekki alltaf? Flensan er a.m.k. loksins farin og ég frétti það af tölvunni í dag að hún viðgerð væri hafin
Já, flensan loksins farin en þrátt fyrir hana stóðst ég nú ekki mátið og stalst aðeins út í góða veðrið í gær og tók nokkrar myndir ...
Fleiri myndir eru venju samkvæmt inn á myndasíðunni minni
En jæja, þarf víst að taka upp tíma og svo fara að læra ...
Meira síðar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 17. febrúar 2009
Afmælisdagur
Klukkan er rétt rúmlega átta þennan fallega morgun. Búin að borða hinn daglega hafragraut og ég er í rólegheitunum að undirbúa daginn.
Það sem er þó ólíkt við þennan dag miðað við aðra daga er að í dag verða kökur með skóladótinu. Kökur sem ég eyddi gærkvöldinu í að baka Var reyndar örlítið, en þó aðeins örlítið, panikk þegar rafmagnið fór þegar seinni kakan átti 5 mínútur eftir inn í ofninum En það reddaðist allt, sem betur fer ... eða ég vona það a.m.k., hef auðvitað ekki smakkað kökuna Nú er bara eftir að að þeyta rjóma og svoleiðis smotterí áður en ég held í skólann.
Ástæðan fyrir öllu þessu stússi er auðvitað að ég á afmæli í dag. Orðin 29 ára gömul, sem mér finnst algerlega frábært Hvað er skemmtilegra en að eldast? Hmm.. örugglega margt reyndar, en mér finnst bara svo stórkostlegt að hugsa til baka yfir 28. aldursárið og rifja upp allt það nýja sem ég lærði og kemst hreinlega ekki hjá því að hlakka til alls þess sem ég mun læra á 29. aldursárinu sem ég held að verði ennþá skemmilegra en það síðasta
Annars er allt gott að frétta. Tókst að skila ritgerðinni sem ég var að skrifa síðustu viku, fékk góða vini í kjötsúpu á laugardagskvöldið og á sunnudaginn fór ég í göngutúr með litlu systur í góða (vor)veðrinu. Í gær byrjaði ég svo í áfanga í Haf- og strandsvæðanámi Hsvest (Conflict resolution in resource management) sem ég er að taka í tengslum við master's námið mitt í HÍ. Lýst bara mjög vel á þetta, skemmtilegur kennari og frábærir samnemendur Í kvöld kemur svo fjölskyldan í mat sem er alltaf gaman, er meira að segja svo skipulögð í þetta skiptið að ég er byrjuð að elda - setti kjúklinginn í mareneringu í gær, við litla systir öngum af hvítlauk og rommi
En jæja, þarf víst að þeyta rjóma áður en ég fer.
Meira síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 11. febrúar 2009
Ritgerðarskrif
Jámms, er á fullu í ritgerðarskrifum og er því heldur leiðinleg þessa vikuna, skil á föstudag en planið að klára ritgerðina á morgun ...
Var að vinna alla helgina á gönguskíðamóti, smellti þessari af á sunnudaginn þegar við litla systir skelltum okkur á skíði eftir mót
En jæja, þýðir víst ekkert slugs ef ég ætla að klára ritgerðina á morgun ...
Meira síðar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 3. febrúar 2009
Gönguskíðasvæðið
Svo ég haldi nú áfram að monta mig af því hvað það er yndislegt að búa á Ísafirði ...
Það var alveg hreint yndislegt veður, þó það hafi nú reyndar verið örlítið kalt Meiri háttar skíðasvæði ekki satt?
Annars er ósköp lítið að frétta, er reyndar farin að hafa svo gaman af þessu ljósmyndastússi mínu að ég er alvarlega farin að velta fyrir mér hvort ég eigi að kaupa mér svona "alvöru" myndavél, en þykir á sama tíma svo hrikalega vænt um litlu Canon PowerShot vélina mína ...
Meira síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)